29.janúar 2010

Það er gott að ferðast, en óþarfi fyrir kex!
Þú mætir í vinnuna snemma morguns og ert búin að fara yfir verkefni dagsins og hafist er handa við að skila sínu. Það skiptir litlu hverskonar vinnu þú vinnur. Það þykir flestum gott að taka örstutta kaffipásu um miðjan morgun og þá þykir flestum einnig gott að hafa eitthvað að narta í með kaffinu. Það er við aðstæður sem þessar sem Frón kex kemur við sögu - á hverjum degi.

Það er samt ekki alltaf sem íslenskt kex er á boðstólnum. Þá er stundum gripið í erlent kex en fáir hafa líklega leitt hugan að því að kex sem kemur erlendis frá er æði víðförult.

3000 kílómetrar algengir
Hverjum hefði dottið það í hug þegar grófu kexi er dýft í kaffibolla að það væri kannski búið að ferðast allt að þrjú þúsund kílómetra um heiminn, bara til þess að vera brotið niður og dýft í kaffi á vinnustað á Íslandi. Væri ekki miklu einfaldara að skiptast bara á uppskriftum og baka kexið hér?

Þetta er ótrúlegt staðreynd. Matur sem fólk borðar dags daglega og kex er þar að sjálfsögðu meðtalið, hefur að meðaltali ferðast þrjú þúsund kílómetra vegalengd. Þetta er ein af afleiðingum alþjóðavæðingarinnar – fólk á Íslandi, getur keypt kex sem kemur frá New York, sem er um 4200 kílómetrar. Hugsið ykkur bara orkuna sem fer í að fljúga með kexpakka alla þessa leið... og svo á eftir að brjóta kexið og dýfa því í kaffið!

Margir eru orðnir meðvitaðir um hve víðförlar matvörur eru. Að sjálfsögðu er ekki hægt að framleiða allar matvörur á Íslandi – en það er svo sannarlega hægt að skiptast á uppskriftum eða bara kaupa íslenskt kex.

Reyndar er það svo að ný hreyfing er farin að segja til sín og hún er sett til höfuðs alþjóðavæðingunni, kannski mætti kalla hana þjóðavæðingu – en hún snýst um það að kaupa sem mest af vörum sem framleiddar eru í nágrenni við heimilið og þannig styðja við innlenda framleiðslu og um leið draga úr neikvæðum áhrifum alþjóðavæðingarinnar.



21.desember 2009

Heitt súkkulaði


Jólin eru tími eftirvæntingar, ljóss og friðar. Þetta er jafnframt sá tími ársins sem við njótum þess að vera saman og dekra við okkur í mat og drykk.

Heitt súkkulaði var lengi vel munaður sem flestir leyfðu sér á jólum, enda fer bolli af góðu súkkulaði einstaklega vel með smákökum, tertum og öðrum sætum freisingum jólahátíðarinnar.

Uppdekkað kökuborð hefur smám saman vikið fyrir öðrum jólahefðum og minna ber fyrir vikið á heita súkkulaðinu en áður. Fáar freistingar standast þó í samanburði og óneitanlega fylgir því alveg sérstök stemmning að fá ekta heitt súkkulaði með jólasmákökunum, sér í lagi við notalegt kertaljós í skammdeginu.

Heitt súkkulaði er afar fljótgert og fyrir þá sem langar að endurvekja þennan gamla sið, þá er hér frábær uppskrift að ekta heitu súkkulaði, sem bragðast einstaklega vel með jólasmákökum frá Frón.
Ekta heitt súkkulaði

1 lítri af mjólk (eða léttmjólk)
100g suðusúkkkulaði
1 tsk salt (eða minna)
Örlítið af vanilludrpum (eftir smekk)
Smjörklípa (eftir smekk)

Þú bræðir súkkulaðið í smá mjólk við vægan hita, hellir restinni af mjólkinni út í pottinn og setur saltið og vanilludropana út í.

Hækkaðu hitann, hrærðu frá botninum með reglulegu millibili og taktu pottinn af hellunni þegar suðan er að koma upp. Hrærðu smjörklípuna saman við.

Borið fram með þeyttum rjóma. Einnig má strá rifnum súkkulaðispænum yfir rjómann.



14.desember 2009

Jólamarsipan frá Frón


Konfektgerð nýtur vaxandi vinsælda á aðventunni, enda bragðgóð skemmtun í skammdeginu fyrir jafnt fjölskylduna sem vinahópinn.

Jólamarsipan er nýjung frá Frón, sem er fullgert bæði í áferð og sætleika og má nota það beint í alla konfektgerð. Í því felst talsverð hagræðing, þar sem ekki þarf að hnoða það upp áður með eggjahvítu og flórsykri. Jólamarsipanið er í 300 gr. umbúðum, sem innihalda þrjár marsipanlengjur hver.

Í konfektgerð eru möguleikarnir nær óteljandi og snýst þessi grein matgerðarlistarinnar aðallega um hugmyndaflug og sætar freistingar í réttum hlutföllum.

Palli bakari hjá Frón hefur tekið saman nokkrar freistandi uppskriftir, sem geta veitt konfektmeisturum fjölskyldunnar innblástur eða leiðbeint þeim sem eru að taka sín fyrstu skref.
Skoðaðu uppskriftirnar hérna.


Komin í “kex” saman. Kristján Sturluson, framkvæmdastjóri Rauða krossins og Hjördís Ósk Óskarsdóttir, markaðsstjóri Fróns, við undurritun samstarfssamnings Rauða kross Íslands og Fróns.

11.desember 2009

Frón leggur Rauða krossinum lið


Hluti af söluandvirði hvers kexpakka af Frón mjólkurkexi mun renna til innanlandsstarfs Rauða kross Íslands, samkvæmt samstarfssamningi sem undirritaður var í dag. Samningurinn tekur gildi 1. Janúar nk. og er sá fyrsti sinnar tegundar í fjáröflun félagsins.

Rauði krossinn hefur staðið að öflugu hjálparstarfi hérlendis síðan 1924. Með breyttum aðstæðum í þjóðfélaginu, er vægi þess enn mikilvægara ekki hvað síst gagnvart atvinnuleitendum, barnafjölskyldum og barna- og unglingastarfi félagsins.

Samkvæmt samningnum leggur Frón Rauða krossinum til ákveðinn hluta af andvirði hvers pakka af mjólkurkexi sem selst í verslunum og verður það fé sem safnast afhent félaginu í desember ár hvert. Jafnframt er félaginu tryggð ákveðin styrktarupphæð óháð sölu ársins. Samningar sem þessir tíðkast víða erlendis sem stuðningsfyrirkomulag við hjálparstarf Rauða krossins og hefur það nú verið tekið upp hér á landi í fyrsta sinn.

Samstarf Rauða krossins og Fróns hófst með stuðningi Fróns við barnafataskiptimarkað Rauðkrosshússins, sem hóf göngu sína nú í vetrarbyrjun og kemur samstarfssamningurinn sem undirritaður var í dag í framhaldi af því.

Kristján Sturluson: “Það hefur mikla þýðingu fyrir Rauða krossinn að eiga í samstarfi við íslensk fyrirtæki líkt og Frón. Þessi styrkur mun koma sér vel í því árferði sem við búum við núna.”

Hjördís Ósk Óskarsdóttir: “Rauði krossinn heldur úti öflugu hjálparstarfi hér innanlands fyrir börn og unglinga og fjölskyldur þeirra. Með samstarfinu viljum við leggja okkar af mörkum til þessa mikilvæga uppbyggingarstarfs.”

9.desember 2009

Piparkökur á aðventunni


Aðventan er sá tími ársins sem piparkakan nýtur sín best. Ljúffengt kryddbragð piparkökunnar gefur rétta jólabragðið og er jafn ómissandi fyrir notalega jólastemmningu á aðventunni og jólaljósin. Frón er með tvær gerðir og þú getur því valið á milli þess að bjóða sígildar piparkökur eða piparkökudropa, allt eftir tilefninu.

2.desember 2009

Nú getur þú líka bakað súkkulaðibitakökur


Súkkulaðibitakökur eru nýjung í smákökudeiginu frá Frón.
Í mörg horn er að líta fyrir jólin og það getur því verið handhægt að grípa í tilbúið jólasmákökudeig.

Auk súkkulaðibitadeigsins eru tvær aðrar gerðir í boði, sem eru ekki síður jólalegar eða kókostoppar og piparkökur.

Smákökudeigið frá Frón kemur í stuttu lengjum, sem þú skerð einfaldlega niður. Eftir aðeins 10 til 12 mínútna bakstur færðu nýbakaðar og ilmandi jólasmákökur. Ekkert fer til spillis. Þú nýtir deigið til fulls.

Þá er jólakökusmádeigið upplagt ráð, ef þig langar að drýgja aðeins heimbökuðu smákökurnar eða fjölga sortunum fyrir jólin.

20. nóvember 2009

Umfjöllun í Morgunblaðinu
 
Í Morgunblaðinu í dag, á blaðsíðu tvö, er frétt þar sem fjallað er um Frón og stórmarkaðinn Kost.

Nefnt er að í ákveðnum tilvikum bjóðist Kosti vörur á verði sem sé allt að 20% hærra en almennt útsöluverð í verslunum í samkeppni við Kost.

Því er fyrstu til að svara að útsöluverð í verslun endurspeglar ekki endilega kostnaðarverð vörunnar þar sem kostnaðarverð er í sumum tilfellum ekki ráðandi þáttur í ákvörðun smásöluverðs á vöru eins og var áður.

Verslanir geta selt vörur á eða undir kostnaðarverði til að laða til sín viðskiptavini. Þetta sést vel á ýmsum verðstríðum frá síðustu árum. Tilboð eru til þess gerð að laða fólk í verslanirnar og það er svo önnur verslun viðskiptavina sem heldur heildarálagningunni verslunarinnar viðunandi.

Ef verð á vöru er ódýrara á almennu útsöluverði í verslun en hjá okkur þá er hluti skýringarinnar eðlilegur kjaramunur en einnig getur smásalinn verið að lækka verð vörunnar til að laða til sín viðskiptavini.

Kaupmenn geta því verið að niðurgreiða vörur til viðskiptavina sinna í sumum tilfellum. Það ásamt eðlilegum kjaramun útskýrir misræmið í verði, ekki það að einn smásöluaðili niðurgreiði vörurnar fyrir annan.

Þegar við seljum viðskiptavini vöru byggjast kjörin meðal annars á magni, kostnaði við dreifingu, greiðslukjörum og viðskiptasögu. Við getum ekki byggt á öðru og getum ekki leyft okkur að taka afstöðu með eða á móti þeim sem eru í samkeppni á smásölumarkaði.

Frón er gamalgróið fyrirtæki á Íslandi, stofnað 1926. Matarkex er afar vinsælt en Íslendingar borða um 260 tonn af Matarkexi á hverju ári. Við sækjum okkar styrk til neytenda sem vilja vöruna okkar og gerum okkur grein fyrir þeirri ábyrgð sem því fylgir. Það er því af og frá að nokkur geti stillt okkur upp við vegg og farið fram á kjör sem við getum ekki staðið undir því staða okkar byggist á vali neytanda sem hefur alltaf síðasta orðið. Neytandi getur ekki einasta valið um hvort hann kaupi ákveðna vöru, heldur líka hvar.

Þá má einnig geta þess að Kostur er með ágætis úrval af Frónkexi í verslun sinni en þar eru seldar 8 vörutegundir frá Frón, svipað og í mörgum öðrum verslunum. Við erum bjartsýn á að þetta eigi eftir að ganga vel hjá Kosti og viðskiptin eiga vonandi eftir að aukast.

Frétt Morgunblaðsins má lesa hérna

20. nóvember 2009

Jólin koma með smákökunum frá Frón


Smákökurnar frá Frón eru sígildur hluti af jólunum, enda fátt jólalegra en fallegur kökudiskur með úrvali af uppáhaldssmákökunum.
Þú getur valið um fjórar ljúffengar tegundir, bæði sem viðbót við þínar eigin eða einar sér. Hver þeirra tengist með sínum hætti íslensku jólahaldi í gegnum áratugina. Hjá sumum koma jólin með loftkökunum eða súkkulaðibitakökunum, á meðan vanilluhringir eða mömmukossar gefa rétta tóninn hjá öðrum fyrir jólastemmninguna.

Jólasmákökurnar frá Frón eru bakaðar eftir sígildum uppskriftum og fara að því leyti vel saman við heimabakstur. Sífellt fleiri drýgja því baksturinn með jólasmákökunum frá Fróni eða bæta þeim við til að auka úrvalið.

18. nóvember 2009

Sígildar jólasmákökur í nýjum umbúðum
 
Jólasmákökurnar frá Fróni skarta nýjum umbúðum í ár. Þetta eru afar handhæg box, sem eru endurlokanleg og sem smákökurnar geymast vel í með tilliti til gæða. Það má því segja að jólin endist aðeins lengur með nýju smákökuumbúðunum.Nýju umbúðirnar taka 400 gr. af loftkökum, súkkulaðibitakökum, vanilluhringjum eða súkkulaðibitakökum.

Vanilluhringir, loftkökur og súkkulaðibitakökur eru einnig fáanlegar í smærri umbúðum, fyrir þá sem vantar örlitla viðbót eða langar einfaldlega að falla í smá freistni á aðventunni.
 

09. nóvember 2009

Frón styður Rauðakrosshúsið

Frón styður skiptifatamarkaður fyrir barnaföt í Rauðakrosshúsinu

Barnafataskiptimarkaður Rauðkrosshússins var formlega opnaður á laugardaginn var. Víða leynast heilleg barnaföt sem eru orðin of lítil eða hafa af öðrum ástæðum verið tekin úr notkun. Þessi nýstárlegi skiptimarkaður er vettvangur fyrir þá foreldra, forráðamenn og aðstandendur barna, sem eiga í fórum sínum slík föt og vilja að þau nýtist áfram.

Skiptimarkaðurinn fer þannig fram að viðkomandi leggur barnaföt inn á markaðinn og getur að því búnu valið önnur föt í staðinn eftir skiptikerfi Rauðakrosshússins. Einnig geta þeir sem vilja, gefið barnafatnað á markaðinn og komið með því móti heillegum barnafötum áfram til þeirra sem geta nýtt þau. Skiptikerfið er afar einfalt í sniðum og er ekkert lágmark á innlögðum fötum, hvort heldur um skiptifatnað er að ræða eða gjafafatnað.

Frón er stuðningsaðili barnafataskiptimarkaðarins. Markaðurinn er opinn á þriðjudögum frá kl. 13.30 til 17 og á laugardögum frá kl. 13 til 15. Hvetjum við alla sem luma á heillegum barnafötum að koma við á markaðnum, sem er sneisafullur af flottum fötum.

Fram að jólum verður sérstök áhersla lögð á sparifatnað á skiptimarkaðnum, ásamt íþrótta- og útifatnaði.
Gestum og gangandi í Rauðkrosshúsinu er boðið á kaffi og Frónkex, Góð aðstaða er fyrir börn.

 

03. júní 2009

Frón bjargar Færeyingum

Þjóðarkex Færeyinga framleitt á Íslandi
Skipskeks sem er nokkurskonar Mjólkurkex þeirra Færeyinga var um langt árabil framleitt í Skotlandi. Einn daginn var framleiðslu kexins hætt og þá voru góð ráð dýr.

Gerð var út sendinefnd til frændanna í norðri og Hjalti Nielsen framkvæmdarstjóri Frón tók vel á móti þeim. Strax hófst tilraunabakstur og á næstu þrem mánuðum tókst einvala starfsliði Frón að endurgera þjóðarkex Færeyinga.

Skipskeks er nú aftur komið í hillur verslana í Færeyjum og framleiðsla er á fullu í höfuðstöðvum Frón til að eiga í næstu pöntun.

Íslendingum gefst að sjálfsögðu kostur á að gæða sér á þessu góðgæti, en það verður til í verslunum hérlendis í kjölfar þessa.

• Sjá frétt úr Kastljósi 2. júní 2009

Frón - kemur við sögu á hverjum degi!
 


Vörurnar frá Frón eru Íslendingum að góðu kunnar. Við höfum öll alist upp við Mjólkurkexið góða sem er eflaust til á heimilum flestra landsmanna og Matarkexið sem var ein af fyrstu afurðum Fróns. 

Það er enn hringt til okkar og spurt hvort það sé ekki hægt að fá brotakex í kassa á góðu verði. En það er orðið langt síðan að Frón hætti að selja brotakex. Eftir að vélarkostur varð betri minnka brotin.

Vöruval Fróns er mjög fjölbreytt og vöruþróunarsvið vinnur stöðugt að því að koma með nýjungar.


Ný Frón auglýsing kom fyrir sjónir fólks í sjónvarpi 2006, sem minnir okkur á að Frón kexið kemur við sögu á hverjum degi:
● sjá auglýsingu


 


kemur við sögu á hverjum degi!



Sala og dreifing Frón vara
fer fram hjá ÍsAm.


FRÉTTIR:

 


21/02/2008
Frón jólasmákökur

21/02/2008
Spelt Mjólkurkex


02/12/2007
Uppskriftasamkeppni Frón

02/10/2007
Suðurlandsskjálftinn hafinn

01/10/2007
Sumarleikur Frón endar

16/01/2007
Hafðu það kósí! -Töföld ánægja frá Frón

16/06/2006
Frón fíkjubiti slær í gegn!

eldri fréttir | fréttasíða


til baka | upp


| Forsíða | Vörur | Fréttir | Sagan | Fyrirtækið | Starfsfólk | English | Fyrirspurn | Upplýsingar |
Kexverksmiðjan Frón - Tunguháls 11 - 110 Reykjavík - sími: 522 2790
© 2003 Íslensk Ameríska ehf.